Félag Íslenskra Heilsunuddara (F.Í.H.N.) var stofnað þann 23. júní árið 1974 (félagið hét upphaflega Félag Íslenskra Nuddara - F.Í.N. - en skipti var um nafn á aðalfundi 2004. Félagið leggur metnað í að standa vörð um hag félagsmanna með því að hvetja til framþróunar og mynda þannig öflugan faglegan hóp heilsunuddara á Íslandi.
Stofnfélagar voru 23 talsins en í dag eru félagsmenn tæplega 200. Upphafsmaður að stofnun félagsins var Ólafur Þór Jónsson, og var hann jafnframt fyrsti formaður félagsins, Ólafur hefur alla tíð unnið ötullega að framgöngu heilsunudds hérlendis.

F.Í.H.N. og Nuddskóli Íslands (NÍ) eru í samvinnu við Fjölbrautarskólann við Ármúla - Heilbrigðisskólann í Reykjavík, með námsbraut fyrir heilsunuddara. þessi námsbraut er viðurkennd af menntamálaráðuneytinu. Eingöngu þeir sem hafa sambærilegt nám fá inngöngu í F.Í.H.N. Fræðslunefnd F.Í.H.N. fjallar um umsóknir í Félagið, frá þeim sem sækja og hafa stundað nám í öðrum skólum en Nuddskóla Íslands.
(nú haustið 2011 hætti Nuddskóli íslands starfsemi og er allt námið komið í fjölbraut í Ármúla.)

Starfsheitið heilsunuddari er ekki formlega verndað með lögum, eins og títt er um aðrar sambærilegar stéttir, þó að námið sé viðurkennt af Menntamálaráðuneyti. Unnið hefur verið að því ötullega undanfarin ár að fá þessa formlegu lögverndun á starfsheitinu.
 
til baka

Um félagið

Heilsuklettur
Köllunarklettsvegi 1,3.hæð
104 Reykjavík
6624034
heilsunudd@heilsunudd.is

© 2006, FÍHN

Tenglar:
Nuddskóli Íslands

Einkaklúbburinn